Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 21. maí 2021 23:02
Stefán Marteinn Ólafsson
Atli Sveinn: Menn voru bara orðnir hungraðir
Atli Sveinn Þórarinsson þjálfari Fylkis
Atli Sveinn Þórarinsson þjálfari Fylkis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkismenn tóku á móti Keflavík á Wurth vellinum núna í kvöld þegar fimmta umferð Pepsi Max-deildar karla hóf göngu sína.

Fylkismenn höfðu fyrir þennan leik ekki enn unnið sigur á Íslandsmótinu og var því kjörið tækifæri þegar nýliðar Keflavíkur mættu í heimsókn að sækja sinn fyrsta sigur. Fylkir lagði Keflvíkinga nokkuð þægilega 4-2.

„Bara hrikalega gott að ná fyrsta sigri. Við erum búnir að vera bíða eftir þessu," Sagði Atli Sveinn Þórarinsson þjálfari Fylkis eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fylkir 4 -  2 Keflavík

„Keflavík er með mjög kraftmikið lið og við þurftum að mæta því og áttum mjög góðan fyrri hálfleik, mér fannst kannski seinni hálfleikur ekki jafn góður þó við höfum náð að skora þarna tvö mörk með stuttu millibili en heilt yfir er ég bara mjög þakklátur fyrir sigurinn."

Sigur Fylkis í þessum leik var þeirra fyrsti á þessu Íslandsmóti og var Atla Svein létt við að landa loks fyrsta sigrinum.
„Já það er það, það verður að viðurkennast því að menn eru búnir að leggja mikið á sig en ekki nóg til að hala inn sigra og nú lögðum við meira á okkur heldur en venjulega og þá uppsker maður eftir því."

Fylkismenn voru virkilega skotglaðir í leiknum og hikuðu ekki við að láta vaða á markið við tækifæri en Atli Sveinn segir það þó ekki hafa verið upplegið að skjóta við hvert færi.
„Nei þetta var ekkert sem við lögðum upp með sérstaklega. Ég held að menn voru bara orðnir hungraðir og menn voru orðnir ósáttir við sig eftir síðustu vikur og svolítið bara búnir að fá nóg."

Nánar er rætt við Atla Svein Þórarinsson þjálfara Fylkis í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner