Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   fim 21. maí 2026 00:46
Ívan Guðjón Baldursson
Emi Martínez puttabrotnaði í upphitun
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa og argentínska landsliðsins, stóð sig vel í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í gærkvöldi.

Hann hafði að vísu ekki mikið að gera er liðsfélagar hans lögðu Freiburg þægilega að velli með þremur mörkum gegn engu.

Eftir leik ræddi Martínez við fréttamenn og sagði frá því að hann puttabrotnaði í upphituninni fyrir leikinn. Honum tókst að spila allan leikinn til að hjálpa félaginu að tryggja sinn fyrsta Evróputitil í 44 ár.

Hann þurfti aðeins að verja tvær marktilraunir allan leikinn er sigur Aston Villa virtist aldrei í hættu.

„Ég braut puttann í upphituninni og af minni reynslu þá leiðir hvert einasta slæma atvik í lífinu til góðs atviks. Þannig hefur það verið allt mitt líf og þannig mun það halda áfram að vera," sagði hjátrúarfullur Martínez eftir lokaflautið.

„Ég hef aldrei brotið putta áður en þetta var mjög sársaukafullt. Í hvert skipti sem ég greip boltann fór puttinn í hina áttina. En þetta eru hlutir sem maður verður að ganga í gegnum, ég er stoltur að verja mark Aston Villa."

Martínez lét sig ekki vanta í fögnuðinn þrátt fyrir að vera puttabrotinn. Hann tók Emery á hestbak og skemmti sér með liðsfélögunum.

Argentínska þjóðin vonar að puttabrotið sé ekki of alvarlegt. Martínez hefur verið lykilmaður í uppgangi landsliðsins og hefur tvisvar sinnum verið valinn sem besti markvörður heims. Hann hjálpaði Argentínu að vinna síðasta heimsmeistaramót og Suður-Ameríkukeppnina.

Með þessum sigri heldur Martínez uppteknum hætti að vinna hvern einasta úrslitaleik sem hann tekur þátt í. Hann hefur aldrei tapað úrslitaleik á ferli sinnum sem atvinnumaður í fótbolta og hingað til hefur hann unnið eitt heimsmeistaramót, tvær Suður-Ameríkukeppnir, FA bikar og núna var komið að Evrópudeildinni.

   20.05.2026 22:49
Emery: Sönnuðum að við erum á réttri braut

Slapp
banner
banner