Fotbolti.net
21.06.04 - 13:47
Magnús Már Einarsson

Brdaric til Wolfsburg (Staðfest)

Brdaric til Wolfsburg (Staðfest)
Canon
Wolfsburg hefur fengið þýska landsliðsmanninn Thomas Brdaric frá Bayer Leverkusen. Brdaric sem að er 29 ára sóknarmaður var í láni frá Leverkusen hjá Hannover 96 á síðustu leiktíð og skoraði kappinn tólf mörk í 28 leikjum sem að hjálpuðu Hannover að halda sér uppi í Bundesligunni. Brdaric sem að á þrjá landsleiki að baki með Þjóðverjum skrifaði undir samning við Wolfsburg sem að gildir til ársins 2007 en hann á 130 leiki að baki í þýsku Bundesligunni og hefur skorað 27 mörk þar.
Brdaric er ekki að skipta um lið í fyrsta sinn því að auk þess að hafa leikið með Leverkusen og Hannover hefur kappinn spilað með SC Fortuna Köln, Fortuna Düsseldorf, VfB Stuttgart, VfL Kirchheim, SV Kickers Stuttgart, FV Nürtingen og VfB Neuffen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.