Ilkay Gundogan er líklega á förum frá Man City í sumar en hann hefur verið orðaður við Galatasaray í Tyrklandi.
Franski miðillinn L'Equipe greinir frá því að Galatasaray hafi náð samkomulagi við leikmanninn um að ganga til liðs við félagið.
Franski miðillinn L'Equipe greinir frá því að Galatasaray hafi náð samkomulagi við leikmanninn um að ganga til liðs við félagið.
Tyrkneska félagið hefur þó ekki hafið viðræður við enska félagið en Gundogan myndi ekki yfirgefa Man City fyrr en HM félagsliða lýkur.
Gundogan gekk aftur til liðs við Man City síðasta sumar eftir aðeins eitt tímabil hjá Barcelona. Hann skoraði þrjú mörk og lagði upp sjö í 51 leik á síðustu leiktíð.
Með komu Tijjani Reijnders til City í sumar er líklegt að hinn 34 ára gamli Gundogan sé kominn ansi aftarlega í goggunarröðina.
Athugasemdir