21.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Pancaro og Albertini skipta um lið. (Staðfest)
Opinber vefsíða AC Milan greinir frá því í dag að Giuseppe Pancaro og Demetrio Albertini muni skipta um lið. Pancaro mun koma til Milan á árs lánssamningi með möguleika á framlengingu á meðan að Albertini fer til Lazio á 2 ára samningi. Albertini lék með Atletico Madrid á láni í vetur og svo virðist sem að AC Milan menn hafi engin not fyrir hann.
