Fotbolti.net
21.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Duff til Chelsea. (Staðfest)

Damien Duff hefur skrifað undir 5 ára samning við Chelsea. Duff kemur frá Blackburn Rovers fyrir 17 milljónir punda en eftir að Rússinnn Roman Abramovich keypti Chelsea hefur liðið keypt 4 leikmenn fyrir samtals 37 milljónir punda. Duff tók sér góðan tíma í að hugsa um það hvort hann vildi fara til London en hann hefur verið þar þrisvar síðastliðna viku og segist halda að þetta sé rétt. Einnig segir Duff að honum hafi ekki langað sérstaklega að yfirgefa Blackburn og þetta hafi verið mjög erfið ákvörðun. Við skulum skoða metsölur á írskum og enskum leikmönnum frá upphafi.
Rio Ferdinand (2002) Leeds United til Manchester United 29.1 milljónir punda.

Rio Ferdinand (2000) West Ham United til Leeds United, 18 milljónir punda.

Damien Duff (2003) Blackburn Rovers til Chelsea, 17 milljónir punda.

Alan Shearer (1996) Blackburn Rovers til Newcastle United, 15 milljónir punda.

Robbie Keane (2000) Coventry City til Inter Milan, 13 milljónir punda.

Emile Heskey (2000) Leicester City til Liverpool, 11 milljónir punda.

Frank Lampard (2001) West Ham United til Chelsea, 11 milljónir punda.

Robbie Keane (2001) Inter Milan til Leeds United, 11 milljónir punda.

Robbie Fowler (2001) Liverpool til Leeds United, 11 milljónir punda.

Chris Sutton (1999) Blackburn Rovers til Chelsea, 10 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.