Salah vill framlengja við Liverpool - Al-Nassr vill fá Kovacic - Man Utd og Newcastle enn með í baráttunni um Rabiot
   sun 21. júlí 2024 11:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Zabarnyi framlengir við Bournemouth
Mynd: EPA

Úkraínski varnarmaðurinn Illia Zabarnyi hefur skrifað undir nýjan samning við Bournemouth. Nýi samningurinn gildir til ársins 2029.


Zabarnyi er 21 árs gamall en það er aðeins eitt og hálft ár síðan hann gekk til liðs við félagið frá Dynamo Kiev.

Hann var lykilmaður í liðinu á síðustu leiktíð en hann lék 37 leiki í úrvalsdeildinni. Liðið hafnaði í 12 sæti deildarinnar með 48 stig sem er met hjá félaginu.

Hann á að baki 39 landsleiki fyrir hönd Úkraínu. Hann lék alla þrjá leiki Úkraínu á EM í Þýskalandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner