Fotbolti.net
21.08.26 - 18:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Curtis Jones til Inter (Staðfest)

Curtis Jones til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalíumeistarar Inter eru búnir að staðfesta félagaskipti Curtis Jones úr röðum Liverpool.
Curtis Jones í læknisskoðun á morgun
TENGT EFNI

Curtis Jones í læknisskoðun á morgun

Inter greiðir 30 milljónir evra fyrir Jones og geta 5 milljónir bæst við í árangurstengdar aukagreiðslur. Þá heldur Liverpool 10% af hagnaði á næstu sölu leikmannsins.

Andoni Iraola, nýr þjálfari Liverpool, vildi halda Jones á Anfield en gat ekki lofað honum fastasæti í byrjunarliðinu. Því neyddist félagið til að selja þennan uppalda miðjumann sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi.

Jones hafnaði nýju samningstilboði frá Liverpool til að fá tækifæri í öðru landi.

Liverpool vantar nýja leikmenn til að fylla leikmannahópinn fyrir gluggalok og er stórveldið með sérstaklega mikið af lausum plássum fyrir menn sem eru uppaldir hjá enskum félagsliðum í þrjú ár á milli 15 og 21 árs aldurs.

Félagið er á höttunum eftir kantmönnunum Bradley Barcola og Yankuba Minteh þessa dagana en hvorugur þeirra telst sem uppalinn á Englandi.

Curtis Jones til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Curtis Jones til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.