21.08.26 - 09:30
Kári Snorrason
Daníel Ingi lánaður til Kolding (Staðfest)

Lánaður til Kolding.

Mynd: Kolding

Var í hóp Nordsjælland sem mætti Val í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lánaður til Kolding.

Mynd: Kolding
Kolding hefur fengið Daníel Inga Jóhannesson á láni frá Nordsjælland út tímabilið.
Kolding leikur í dönsku B-deildinni og endaði liðið í 6. sæti í fyrra. Daníel er 19 ára gamall og kom til Nordsjælland frá uppeldisfélaginu ÍA sumarið 2023.
Hann er bróðir landsliðsmannsins Ísaks Bergmanns og sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar, þjálfara FH.
„Daníel er hæfileikaríkur fótboltamaður með frábært hugarfar og viðhorf. Eftir frábært vor með U19-liðinu er hann kominn á þann stað á ferlinum að hann þarf mikinn spiltíma og mínútur með meistaraflokksliði,“ segir Alexander Riget, yfirmaður fótboltamála Nordsjælland, í tilkynningu félagsins.
Hann kom við sögu í tveimur leikjum með aðalliði Nordsjælland á síðasta tímabili en hefur einungis verið í hóp í Evrópuleikjum liðsins á núverandi tímabili.

Fótbolti.net greindi frá því að sænska félagið GAIS hafði áhuga á að sækja Daníel á láni frá Nordsjælland fyrr í sumar.
Ari Leifsson og Jóhannes Kristinn Bjarnason léku með Kolding á síðasta tímabili en þeir héldu báðir heim til Íslands fyrr á árinu.