21.08.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Juventus hefur rift við Arthur (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Juventus hefur staðfest að samningi brasilíska miðjumannsins Arthur Melo hafi verið rift.
Arthur er 30 ára gamall og samdi við Juventus sumarið 2020 þegar hann kom í umdeildum skiptum við Barcelona þar sem Miralem Pjanic fór í hina áttina.
Arthur lék 63 leiki á tveimur fyrstu árunum hjá Juventus en hefur síðan þá leikið fyrir Fiorentina, Girona og Gremio á lánssamningum.
Miðjumaðurinn varnarsinnaði hefur verið byrði á launastrúktúr Juve síðustu ár.