21.08.26 - 07:47
Elvar Geir Magnússon
Konsa orðinn leikmaður Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ezri Konsa er orðinn leikmaður Arsenal. The Athletic greinir frá því að allt sé frágengið, leikmaðurinn hafi staðist læknisskoðun og skrifað undir fjögurra ára samning.
Kaupverðið sé 51 milljón punda en gæti hækkað upp um 4 milljónir punda til viðbótar eftir ákvæðum.

Konsa, sem er 28 ára, getur bæði leikið sem miðvörður og hægri bakvörður og hefur verið orðaður við Arsenal í allt sumar.
Hann spilaði 48 leiki í öllum keppnum síðasta tímabil þegar Aston Villa vann Evrópudeildina og endaði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar. Hann hefur spilað 286 leiki fyrir félagið síðan hann kom frá Brentford árið 2019.
Arsenal mætir Coventry í kvöld í fyrsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.