21.08.26 - 16:02
Elvar Geir Magnússon
Partey til Al-Shabab (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Al-Shabab í Sádi-Arabíu hefur samið við ganverska landsliðsmanninn Thomas Partey.
Partey, sem er 33 ára, spilaði 167 leiki fyrir Arsenal á árunum 2020 til 2025 varð fáanlegur á frjálsri sölu þegar Villarreal ákvað að framlengja ekki samning hans sem er að renna út.
Partey hefur mikið verið í fréttum undanfarin ár þar sem hann hefur verið sakaður um nauðganir og kynferðisbrot af fjórum konum. Á heimsmeistaramótinu í sumar var Partey meinaður aðgangur að Kanada fyrir fyrsta leik Gana á móti Panama vegna sakamála í Bretlandi.
Meðal liðsfélaga Partey hjá Al-Shabab eru Josh Brownhill og Daniel Podence. Liðið endaði í 13. sæti í Sádi-Arabíu-deildinni á síðasta tímabili og tapaði fyrsta leik sínum á þessu tímabili.

???? ????? ???? ???? ??????? ?? pic.twitter.com/2oNwVkoJbk
— ???? ?????? ??????? (@AlShababSaudiFC) August 21, 2026