21.08.26 - 10:22
Kári Snorrason
Wan-Bissaka til Aston Villa (Staðfest)

Wan-Bissaka og Unai Emery ánægðir.

Mynd: Aston Villa

Wan-Bissaka og Unai Emery ánægðir.

Mynd: Aston Villa
Aaron Wan-Bissaka er genginn í raðir Aston Villa á láni með kaupákvæði frá West Ham. Uppfylli bakvörðurinn ákveðin skilyrði verða félagaskiptin varanleg næsta sumar.
Kaupverðið er talið nema rúmlega 20 milljónum punda. Bakvörðurinn var lykilmaður í liði West Ham á síðasta tímabili sem féll niður í Championship deildina.
Wan-Bissaka fór með Kongó á HM í sumar en hann hefur ekki verið í leikmannahópi West Ham síðustu vikur.
Hann var ekki með í æfingaleikjum á undirbúningstímabilinu og var ekki í hóp í fyrstu tveimur keppnisleikjum nýs tímabils.
Aston Villa mætir Brighton á útivelli á sunnudag í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

The Spider arrives ?????
— Aston Villa (@AstonVilla) August 21, 2026
Aston Villa is delighted to announce the signing of Aaron Wan-Bissaka from West Ham on a season-long loan, with a conditional obligation to buy ???? pic.twitter.com/wHPM6x21ns