Hinn 16 ára gamli Kaide Gordon þreytti frumraun sína með Liverpool gegn Norwich í deildabikarnum í kvöld. Liverpool vann leikinn 3-0 og Gordon spilaði allan leikinn.
Gordon verður sautján ára eftir tvær vikur en hann er kantmaður sem getur einnig spilað fyrir aftan framherjann. Hann á að baki þrjá leiki fyrir yngri landslið Englands.
Liverpool greiddi Derby eina milljón punda fyrir leikmanninn í fyrra og getur kaupverðið hækkað upp í þrjár millljónir punda.
Gordon þótti standa sig vel í leiknum og fékk hann 7 í einkunn frá Liverpool Echo.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði frá því eftir leik að Gordon hefði þakkað sér fyrir tækifærið. Klopp svaraði honum og sagði:
„Hann á ekkert að vera að þakka fyrir, hann átti þetta skilið. Þessir ungu strákar eru góðir og ég þakka Guði fyrir að þeir eru í okkar liði," sagði Klopp.
Athugasemdir