Fotbolti.net
21.09.26 - 17:40
Aðsendir pistlar

Er Besta deildin í krísu?

Sigurður K Pálsson skrifar:

Er Besta deildin í krísu?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðsendir pistlar

Skoðanapistill

[email protected]

Aðsendir pistlar

Nú fer fram hávær umræða um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Umræðan virðist að mestu koma frá þjálfurum og álitsgjöfum. Helsta breytingin sem kallað er eftir er að fjölga liðum úr 12 í 14 og leika tvöfalda umferð, heima og að heiman. Þar með yrði horfið frá núverandi fyrirkomulagi, sem tók gildi árið 2022 þar sem deildinni er skipt í efri og neðri hluta eftir 22 umferðir.

Einnig hefur verið kallað eftir því að mótinu ljúki fyrir landsleikjahléið í september og að svokölluðum „tilgangslausum“ leikjum verði fækkað. Í því sambandi þarf að hafa í huga að UEFA hefur sameinað tvo fyrri landsleikjaglugga í einn lengri glugga að hausti.

Bæði 14 liða deild með tvöfaldri umferð og 10 liða efsta deild, þar sem leiknar yrðu þrjár umferðir, voru skoðaðar mjög vandlega á sínum tíma. Niðurstaðan varð 12 liða deild sem skipt er í efri og neðri hluta eftir 22 umferðir. Að því loknu er leikin einföld umferð í svokallaðri úrslitakeppni.
Helstu markmiðin með breytingunni voru:

Að fjölga leikjum og auka gæði þeirra með úrslitakeppni
Að gera íslensku liðin samkeppnishæfari í Evrópu
Að bæta leikmennina
Að koma fleiri leikmönnum í atvinnumennsku
Að stytta undirbúningstímabilið
Að efla markaðsgildi íslensku deildarinnar
Að auka tekjur félaganna
Að nýta betur fjárfestingu félaganna

Ég tel óhætt að fullyrða að flest ef ekki öll þessara markmiða hafi náðst.

En er líklegt að „tilgangslausum“ leikjum fækki með 14 liða deild? Ég er ekki sannfærður um það. Ef markmiðið er að ljúka mótinu fyrir nýja landsleikjagluggann munar aðeins einum leik: 26 umferðir í stað 27.

Hvaða vandamál er verið að leysa?

Áður en ákveðið er að breyta fyrirkomulaginu þarf að svara grundvallarspurningu: Hvaða vandamál erum við nákvæmlega að reyna að leysa?

Er vandamálið fjöldi leikja, niðurröðun mótsins, landsleikjahléið, álag á leikmenn eða meintur skortur á spennu? Það er ekki sjálfgefið að fjölgun liða úr 12 með úrslitakeppni í 14 leysi nokkurt þessara vandamála. Hættan er sú að við breytum allri umgjörð deildarinnar án þess að hafa skilgreint kosti og galla nægilega vel.

Núverandi fyrirkomulag er vissulega ekki gallalaust. Skoða má niðurröðun leikja, tímasetningar, skipulag í kringum landsleikjahlé, markaðssetningu og hvernig úrslitakeppnin er kynnt. Einnig þarf að tryggja að leikir lokaumferðanna fari eftir fremsta megni fram á sambærilegum tímum og að álag á félög sem taka þátt í Evrópukeppnum sé sanngjarnt.

Þetta eru hins vegar atriði sem hægt er að lagfæra án þess að leggja niður það sem hefur reynst vel.

Hvað myndi 14 liða deild hafa í för með sér?

Í 14 liða deild með tvöfaldri umferð verða líklega fleiri leikir þar sem lítið er undir, ekki færri. Lið sem eru örugg um miðja deild í byrjun ágúst gæti átt mjög lítið að keppa um fram í september.

Úrslitakeppnin, sem hefur skapað spennu og markaðsvirði bæði í efri og neðri hlutanum, myndi hverfa. Þar með yrðu teknir út þeir fimm leikir sem skipta hvað mestu máli fyrir þroska leikmanna og getu þeirra til að takast á við leiki þar sem mikið er undir.

Fjölgun liða getur vissulega gefið fleiri leikmönnum tækifæri sð spila á efsta stigi. Fleiri lið þýða þó ekki sjálfkrafa betri leikmenn eða sterkari deild. Ef gæðunum er dreift á fleiri lið getur niðurstaðan orðið fleiri leikir en færri leikir á hæsta mögulega gæðastigi. Gæða- og fjárhagslegur munur á efstu og neðstu liðunum gæti einnig orðið meiri, ekki minni. Það gæti gert deildina og íslensku liðin minna samkeppnishæf í Evrópu. Félögin þyrftu jafnframt að dreifa kröftum sínum og fjárfestingu á fleiri leiki, en hlutfall mikilvægra toppleikja myndi lækka. Tekjumöguleikarnir og athyglin sem úrslitakeppnin skapar myndu einnig hverfa.

Hvað segja tölurnar?

Tölur KSÍ úr skýrslu starfshópsins frá því í febrúar styðja ekki þá fullyrðingu að leikir úrslitakeppninnar séu tilgangslausir. Meðalaðsókn í efri hluta úrslitakeppninnar var 909 áhorfendur árið 2024 og 896 árið 2025. Til samanburðar var meðalaðsóknin 871 og 840 áhorfendur í fyrstu 22 umferðunum sömu ár. Þetta er ekki vísbending um tilgangslausa leiki. Þvert á móti bendir þetta til þess að verulegur hluti markaðsvirðis deildarinnar felist einmitt í úrslitakeppninni. Áður en fyrirkomulaginu er breytt þarf að greina reynsluna af núverandi kerfi yfir nokkur ár. Skoða þarf meðal annars aðsókn, sjónvarpsáhorf, tekjur félaganna, árangur íslenskra liða í Evrópu, sölu leikmanna og hversu margir ungir leikmenn fá tækifæri.

Ákvörðun um framtíðarskipan deildarinnar á að byggjast á slíkum gögnum og skýrri greiningu, ekki aðeins því hvaða skoðanir heyrast hæst hverju sinni. Spurningin á því ekki eingöngu að vera hvort við viljum 12 eða 14 lið. Spurningin er hvaða fyrirkomulag sé líklegast til að auka gæði íslenskrar knattspyrnu, styrkja félögin fjárhagslega og búa leikmenn sem best undir atvinnumennsku og Evrópukeppni.

Ef við erum að ræða um að fórna kerfi sem hefur skilað flestum, ef ekki öllum, markmiðum sínum, erum við þá ekki að taka skref aftur á bak?

Ég tel að við eigum að þróa núverandi kerfi áfram, lagfæra það sem betur má fara og nýta betur þau tækifæri sem úrslitakeppnin skapar. Það væri óvarlegt að leggja kerfið af áður en sýnt hefur verið fram á, með gögnum og skýrri greiningu, að 14 liða deild muni skila betri leikjum, sterkari félögum og meiri tekjum.

Breyting ein og sér er ekki framþróun.

Sigurður K Pálsson
Sigurður Kristinn Pálsson.

Sigurður Kristinn Pálsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er Besta deildin í krísu?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.