Fékk rautt í Vesturbænum - „Algjör óþarfi og ég þarf að bæta þetta"

Fæddur 1995 og hefur verið í nokkuð stóru hlutverki hjá Víkingum síðustu ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir og Aron Baldvin að fara yfir málin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistaratitlinum fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur Diljan skoraði sigurmarkið gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur hefur verið að spila vel að undanförnu, var orðaður við atvinnumennsku og er í U21 landsliðshópnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur fagnaði með því að haltra og skaut með því á ummæli fyrirliða KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar annað árið í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fæddur 1995 og hefur verið í nokkuð stóru hlutverki hjá Víkingum síðustu ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Víkings og ræddi hann við Fótbolta.net í dag.
„Gríðarlega gaman, þetta var geðveikur leikur, mjög skemmtilegur og miklar tilfinningar sem gerðu þetta ennþá skemmtilegra. Eftir mjög stormasamt tímabil þá er maður mjög stoltur að vera hluti af þessu liði sem nær að verja titilinn sem er mikið afrek og krefst mikils stöðugleika."
„Stöðugleikinn er lykilinn, hann hefur haldist síðustu ár, höfum alltaf náð að vera þarna í kring um toppinn og verðum það vonandi áfram um ókomna tíð. Stöðugleiki er aðalatriði þegar þú vilt keppast um titla og ná árangri í Evrópu. Það náðist að stóru leyti og heilt yfir erum við sáttir með tímabilið. Stöðugleikinn að spila á þessum standard, sem við sýndum líka gegn KR, er það sem við erum stoltir af að hafa sýnt á þessu tímabili. Mér fannst ráin í ár vera hærri en það sem við sýndum í fyrra, finnst við öflugri og höfum bætt okkur talsvert."
Lítið talað um frammistöðu Víkings í Evrópuleikjunum
Mælikvarðinn hvar þið eruð staddir, Íslandsmeistarar tvö ár í röð, en vonbrigði í Evrópu, hvernig mælið þið hvar þið eru staddir?
„Heima fyrir setjum við miklar kröfur að vera dómínerandi í leikjunum. Við viljum stýra öllum leikjum, með og án bolta. Það er ekki nóg að vinna leikina, sem Íslandsmeistari. Horfum mikið á tölfræði og viljum vera á toppnum þar líka. Við fundum klárlega fyrir KR og Fram á þessari leiktíð. Þannig það er alveg ljóst að ef að við ætlum að vera með yfirburði áfram megum við ekki sýna nein veikleikamerki. Ef við slökum á eru þeir klárir. Svo eru lið eins og Breiðablik, Skaginn, Stjörnumenn og Valsmenn sem munu vera talsvert sterkari á næstu leiktíð. Við fögnum þvi að hin liðin bæta sig því það hefur ýtt við okkur.."
„Í Evrópuleikjum leggjum við áherslu á að ná að spila okkar leik. Við viljum reyna að stýra ferðinni, líða vel með bolta og að pressa andstæðinginn. Þegar liðin ná sínum köflum, sem eru yfirleitt fleiri en í deildinni heima, viljum við vera þroskaðir og góðir í að standa það af okkur. Mér finnst skrítið hvað það er búið að vera lítið talað um hvernig við spiluðum í Evrópu í sumar. Ég man ekki eftir svona frammistöðu eins og við sýndum gegn Hapoel, Györ og Thun heima, allt öðruvísi frammistaða en t.d. gegn Bröndby og Panathinaikos í fyrra. Við vorum að kaffæra liðunum, svona sterkum andstæðingum, bæði með og án bolta. Við vorum stórkostlegir."
„Við föllum svo á stóra prófinu gegn að mínu mati slakasta andstæðingnum sem við mættum í Evrópu í sumar. Það eru margar ástæður fyrir því en ef að við lítum á alla þessa leiki finnst mér við geta gengið stoltir af borði og ætlum okkur stærri hluti næsta sumar."
„Við sjáum þetta þannig að við séum samkeppnishæfir þessum liðum, erum að gefa þeim leiki og svo setjum við kröfu á að vinna lið eins og Borac Banja Luka, sem við náðum ekki í ár. Skítur skeður, en mér fannst við samt sýna með frammistöðunni í Evrópuleikjunum að við erum klárlega á réttri leið."
Þarf að læra af yfirvegun Sölva
Aron Baldvin fékk sitt annað rauða spjald á laugardaginn á stuttum tíma.
„Það er klárlega hluti sem maður þarf að bæta þegar það fellur einhver dómur sem manni finnst ósanngjarn. Það er bara hluti af fótbolta. Á stórum mómentum, eins og þarna, þarf maður að bæta þetta."
„Ég var ekkert orðljótur eða þannig, gargaði á Sigga hvað hann væri að pæla en ég held að rauða spjaldið hafi kannski meira snúist að því hvernig ég kem að dómurunum, nálgunin. Svo var þetta kannski allt tekið saman því ég var líka að munnhöggvast við KR-ingana, sem var algjör óþarfi."
„Maður er orðinn pabbi og svona, ef maður gæti endurtekið þetta atvik myndi maður vilja breyta einhverju þarna. Það hjálpar ekki að fá á sig einhvern stimpil. Ég hef ekki verið orðljótur eða með persónuleg orð gagnvart dómaranum, maður er mjög tilfinningaríkur og maður verður að ná að beisla látbragðið. Ég þarf að koma þessum stimpli af mér. Ég ætla reyna taka eitthvað af Sölva kallinum, ná að vera yfirvegaður eins og hann."
Óþarfi að svara KR-ingunum
Var eitthvað ljótt sem fór á milli bekkjanna?
„Allavega ekkert til að tala um, bara einhver kjánalæti. Ég var gríðarlega ósáttur með þetta rauða spjald (á Svein Margeir). Það er ekkert grín að mæta KR 11 á móti 11, 10 á 11 er erfitt en maður var áfram bjartsýnn því lítið var eftir, en 9 á móti 11 á móti liði sem er svona gott að halda bolta og 6-7 mínútur eftir, mér leist ekkert á blikuna að vera tveimur færri. Það fór mikið í gegnum hugann á mér þegar þetta atvik kom. KR-ingar sögðu mér að setjast niður og ég svara á móti, þetta var ekkert meira en það. Svo fæ ég örugglega rautt fyrir allan pakkann. Það var algjör óþarfi hjá mér að vera svara KR-ingunum."
Stórhættulegur leikmaður
Stígur Diljan Þórðarson er bróðir Arons og það var Stígur sem skoraði sigurmarkið á laugardaginn. Hvernig er að sjá hann stíga upp á svona augnablikum?
„Það er gríðarlega gaman. Ég fattaði það ekki í mómentinu, þá vorum við bara að skora. Svo seinna um kvöldið þá var það auka krydd. Bæði í fyrra og árið áður, akkúrat þegar hann var að komast í gírinn, þá meiddist hann. Honum hefur vantað að finna rytma, hefur alltaf verið að nálgast þetta form sem hann er að komast í núna. Hann á talsvert meira inni og vonandi nær hann að haldast heill til lengri tíma, þá er þetta stórhættulegur leikmaður."
Erfitt að vera þjálfari bróður síns
Hvernig er að þjálfa bróður sinn?
„Það er alveg erfitt en ég hef vanist því töluvert. Ég næ að gleyma því þegar ég er í búbblunni; á æfingum og í leikjum. Þá er hann bara leikmaður, maður gleymir því að hann sé bróðir minn í augnablikinu. Svo þegar ég hitti hann hjá mömmu og pabba þá er sambandið allt öðruvísi. Ég mæli ekkert með þessu og ég vona að þetta verði ekki lengi, þetta er alveg pínu óþægilegt, ég viðurkenni það. Maður þarf að leggja meira á sig að vera faglegur og passa sig að setja hann undir sama hatt. Maður fellur stundum í þá gryfju að passa sig of mikið. Sem betur fer hefur þetta vanist og er orðið venjulegt. Svo er ég ekki aðalþjálfari sem tekur lokaákvörðun. En þetta er skrítið og vonandi förum við í mismunandi átt svo maður geti stutt hann meira sem hlutlaus aðili."
Kitlar að verða aðalþjálfari
Síðasta vetur var Aron Baldvin sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá ÍBV. Hvernig sér þitt framhald við þér?
„Ég viðurkenni það alveg að það er byrjað að kitla ansi mikið að fá að vera sinn eigin herra og stýra skútunni einhvers staðar. Mér finnst ég vera mjög tilbúinn í það núna, hef fengið mikið traust frá Sölva og er gríðarlega þakklátur fyrir það. Ég hef fengið risa ábyrgð, fengið að sjá um taktík liðsins að stóru leyti og það hjá langbesta liði landsins sem er alls ekki sjálfsagt. Það hefur hjálpað mér mikið og mig langar að fara búa til mitt eigið verkefni á einhverjum góðum stað. En ef enginn sækist eftir mér þá er ég ánægður í Víkingi, þetta er góður staður til að vera á. Ég er ekki örvæntingarfullur, en ef tækifærið býðst þá er ég klárlega tilbúinn," segir Aron Baldvin að lokum.

Sölvi Geir og Aron Baldvin að fara yfir málin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistaratitlinum fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur Diljan skoraði sigurmarkið gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur hefur verið að spila vel að undanförnu, var orðaður við atvinnumennsku og er í U21 landsliðshópnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur fagnaði með því að haltra og skaut með því á ummæli fyrirliða KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar annað árið í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
