Fotbolti.net
21.09.26 - 18:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sagt að Siggi Lár ætli að rifta við Þrótt - „Held að niðurstaðan verði önnur"

Sagt að Siggi Lár ætli að rifta við Þrótt - „Held að niðurstaðan verði önnur"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Sigurður Egill Lárusson var í dag valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar á tímabilinu en hann var algjör lykilmaður í því að Þróttur komst upp úr deildinni og verður í Bestu deildinni á næsta tímabili.

Fyrir 14 árum síðan var Siggi, sem er fæddur 1992, valinn efnilegasti leikmaður næstefstu deildar en í millitíðinni var að hann í efstu deild með Val ef frá er talið hálft tímabil með Víkingi.

Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í gær var sagt frá því að Sigurður Egill, sem skrifaði undir 1+1 samning við Þrótt myndi nýta sér uppsagnarákvæði í núgildandi samning.
Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2026
TENGT EFNI

Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2026

„Hann er að öllum líkindum að fara rifta við Þrótt. Hann gerði 1+1 samning með riftunarákvæði. Samkvæmt okkar heimildum ætlar hann að skoða sig um, en það er ekkert útilokað að hann verði áfram," sagði Jóhann Már Helgason í þættinum.

Fótbolti.net ræddi við Kristján Kristjánsson sem er formaður fótboltadeildar Þróttar og var hann spurður út í Sigga.

„Ég hef ekkert heyrt um það, ég held að niðurstaðan verði önnur. Við viljum gjarnan að hann verði áfram og ég veit ekki betur en að hann vilji það," segir Kristján.

Í sama þætti var Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttar, orðaður við KR. Baldur er 24 ára uppalinn Þróttari, fyrrum unglingalandsliðsmaður, sem framlengdi við Þrótt fyrr á árinu og er samningsbundinn út tímabilið 2028.
Sagt að Siggi Lár ætli að rifta við Þrótt - „Held að niðurstaðan verði önnur"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.