Fotbolti.net
21.10.19 - 22:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hæstánægður Wilder: Áttum sigurinn skilinn - Vissum að þeir myndu halda boltanum

Hæstánægður Wilder: Áttum sigurinn skilinn - Vissum að þeir myndu halda boltanum
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United vann í kvöld góðan 1-0 heimasigur á Arsenal. Lys Mousset skoraði eina mark leiksins eftir um hálftíma leik.

Chris Wilder, stjóri Sheffield United, var spurður út í leikinn og fleira tengt honum eftir leik.
„Við áttum sigurinn skilinn í þessum leik. Við vissum að þeir myndu fá færi og yrðu meira með boltann."

„Það var gott jafnvægi á liðinu og við þurftum að eiga okkar besta leik til að fá stigin þrjú. Leikmenn vita hvað þarf til að ná í sigra í þessari deild. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að vinna Arsenal, þeir eru ekki þriðju deildar lið en þetta er bara einn heimasigur."

„Markið var gott fyrir Mousset. Hann er vinsæll í hópnum. Það tók hann smá tíma að aðlagast en hann býður upp á aðra hluti en við höfðum fyrir."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.