Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. október 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Shaw og Matic til æfinga í Dubai
Mynd: Getty Images
Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United, og Nemanja Matic miðjumaður liðsins eru báðir á leið til Dubai þar sem þeir verða við æfingar í vikunni.

Shaw meiddist aftan í læri gegn Crystal Palace þann 24. ágúst og hefur verið frá keppni síðan þá.

Shaw var nálægt því að snúa til baka á dögunum en þá kom bakslag í meiðslin. Hann fer nú til Dubai til að æfa í heitara loftslagi.

Matic er einnig á meiðslalistanum og hann mun líka æfa í Dubai í vikunni. Báðir leikmennirnir snúa síðan aftur til Englands um næstu helgi.

Paul Pogba, liðsfélagi þeirra, er mættur aftur til Englands eftir að hafa verið við æfingar í Dubai í síðustu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner