Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 21. október 2020 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Flick hreinskilinn - Davies ekki að spila sérlega vel
Hinn 19 ára gamli Alphonso Davies sló í gegn á síðasta tímabili sem vinstri bakvörður í besta liði Evrópu, Bayern München.

Saga Davies er áhugaverð en foreldarar hans komu sem flóttamenn frá Gana til Kanada þegar að Davies var fimm ára gamall. Í dag er hann einn besti bakvörður í heimi.

Hansi Flick, stjóri Bayern, segir að Davies hafi ekki verið eins góður í byrjun þessa tímabils og hann endaði síðasta tímabil. Kanadamaðurinn fljóti hefur verið inn og út úr liði Bayern í upphafi þessa tímabils.

Bayern mætir Atletico í kvöld þegar liðið hefur titilvörn sína í Meistaradeildinni. Fyrir leikinn var Flick spurður út í Davies.

„Hann hefur ekki verið eins góður á þessu tímabili," sagði Flick hreinskilinn. „En hann fær allan stuðning okkar. Við njótum góðs af hraða hans og orku."

„Það er mikilvægt að hann finni taktinn aftur. Það er eðlilegt að ungir leikmenn missi taktinn í sínum leik eftir ótrúlegt tímabil, en við munum styðja hann og hjálpa honum."
Athugasemdir