Fotbolti.net
11.09.26 - 16:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fannar fær aukaleik í bann fyrir framkomu sína

Fannar fær aukaleik í bann fyrir framkomu sína
Canon

Mynd: Aðsend

Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB og fékk hann rautt spjald undir lok leiks gegn Kolding í næstefstu deild Danmerkur í lok síðasta mánaðar.

AB tapaði 2-1 á heimavelli Kolding og fékk Fannar rauða spjaldið á 93. mínútu. Í uppbótartíma missti Fannar stjórn á skapi sínu og sparkaði í auglýsingaskilti.

En það var ekki það eina sem hann gerði. Danska sambandið hefur gefið út að Fannar hafi gripið í hönd dómarans eftir leikinn og í kjölfarið hafi dómarateymið þurft að óska eftir því að öryggisvörður myndi fylgja Fannari í burtu.
Hver er Íslendingurinn sem þjálfar AB? - „Finnst þægilegra að vinna í skuggum“
TENGT EFNI

Hver er Íslendingurinn sem þjálfar AB? - „Finnst þægilegra að vinna í skuggum“

Einnig er sagt frá því að Fannar hafi reynt að ná aftur á dómaranum í leikmannagöngunum en öryggisvörður kom í veg fyrir að eitthvað gæti gerst.

Fannar fær 19 refsistig fyrir framkomu sína sem verður að aukaleik í bann. AB er í 8. sæti B-deildarinnar. Fannar Berg tók við liðinu í nóvember fyrir tæpu ári síðan, fór úr því að vera aðstoðarmaður Jóhannesar Karls Guðjónssonar í að stýra liðinu og stýrði liðinu upp um deild. Jói Kalli var þá að taka við FH.

Markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson er leikmaður AB.

Heimild: Bold.dk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.