banner
   fim 21. október 2021 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Henry telur Benzema vera betri en Salah
Mynd: EPA
Franska knattspyrnugoðsögnin Thierry Henry starfar í dag sem knattspyrnusérfræðingur hjá Sky Sports, CBS og fleirum og tjáði hann sig um Mohamed Salah eftir sigur Liverpool á Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu.

Jamie Carragher og fleiri töluðu um Salah sem besta knattspyrnumann heims um þessar mundir en Henry deilir ekki þeirri skoðun.

„Hann er stórkostlegur leikmaður en hvernig er hægt að gleyma Lewandowski og Benzema? Ég held ekki að Salah sé kominn í þann gæðaflokk," sagði Henry í sjónvarpsveri CBS Sports.

„Salah er besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í dag, það er augljóst, en hann er ekki að standa sig jafn vel og Benzema. Það sem hann hefur verið að gera fyrir Real Madrid og franska landsliðið er á öðru plani."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner