21.10.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar Páll tekur Guðmund með sér frá Gróttu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigmundsson var í síðustu viku tilkynntur sem nýr þjálfari Stjörnunnar og mun hann taka við stjórn liðsins eftir tímabilið. Rúnar Páll kemur frá Gróttu og hann tekur allavega einn leikmann með sér því Guðmundur Rafn Ingason er búinn að skrifa undir samning við Stjörnuna.
Guðmundur Rafn er markmaður sem fæddur er 2004 og varði mark Gróttu á tímabilinu. Samningur hans við Stjörnuna gildir út árið 2029.
Guðmundur Rafn er markmaður sem fæddur er 2004 og varði mark Gróttu á tímabilinu. Samningur hans við Stjörnuna gildir út árið 2029.

TENGT EFNI
Hvað gerir Stjarnan í leikmannamálum? - Miklar breytingar í kortunum
Hann er uppalinn hjá Stjörnunni og var síðast í Garðabænum í fyrra þegar hann varði mark venslaliðsins KFG í 2. deild. Guðmundur var á mála hjá Fylki á árunum 2022-24.
Guðmundur Rafn er fyrsti leikmaðurinn sem Stjarnan krækir í þetta haustið. Hann hélt fjórum sinnum hreinu í 21 leik í Lengjudeildinni á liðnu tímabili.
Árni Snær Ólafsson er aðalmarkvörður Stjörnunnar og Darri Bergmann Gylfason er varamarkvörður. Aron Dagur Birnuson er einnig samningsbundinn Stjörnunni en hann var á láni hjá Þrótti Reykjavík á liðnu tímabili.