Fotbolti.net
22.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Dynamo Moskva fær Kanchelskis (Staðfest)

Dynamo Moskva fær Kanchelskis (Staðfest)
Canon
Andrei Kanchelskis, fyrrum vængmaður Manchester United, hefur skrifað undir samning til eins árs við Dynamo Moskvu. Rússneska úrvalsdeildarliðið segir að samningurinn, sem rennur út í desember 2004, gæti vel verið framlengdur um eitt ár.
Kanchelskis verður 35 ára á morgun en hann hefur ekki spilað síðan leiðir skildust milli hans og Al Hilal, meistaranna í Sádi-Arabíu. Hann spilaði fjórar leiktíðir með Manchester United á árunum 1991-95 og vann þá með liðinu tvo deildarmeistaratitla og FA bikarinn.

Hann hefur komið víðar við og einnig leikið með Everton, Rangers, Fiorentina og úkraínsku félögunum Shakhtar Donetsk og Dynamo Kiev. Kanchelskis hefur skorað meira en 80 mörk á ferlinum og er fyrstu kaup Tékkans Jaroslav Hrebik sem er nýr þjálfari Dynamo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.