lau 22. janúar 2022 11:45
Brynjar Ingi Erluson
Níu dagar í gluggalok - „Get ekki beðið"
Vincenzo Italiano
Vincenzo Italiano
Mynd: EPA
Vincenzo Italiano, þjálfari Fiorentina á Ítalíu, gefur í skyn að það sé ólíklegt að Dusan Vlahovic yfirgefi félagið áður en glugginn lokar eftir níu daga.

Arsenal, Tottenham og Juventus eru öll á eftir serbneska framherjanum sem leikur sér að því að skora Ítalíu.

Talið er að Juventus ætli að leggja fram tilboð á næstu dögum en ensku miðlarnir greina frá því að Manchester City sé eina enska félagið sem heillar Vlahovic í augnablikinu.

Tuttomercato segir að Juventus ætli að gera allt til að fá hann en Italiano segist ekki sjá breytingu á Vlahovic.

„Ég sé sama Dusan í dag og ég sé alla daga. Það er mikið rætt um framtíð hans en það hefur ekkert breyst. Ég get ekki beðið eftir því að glugginn lokar," sagði Italiano sem er vongóður um að halda framherjanum.
Athugasemdir
banner
banner
banner