Kvennalið ÍBV hefur fengið til sín öflugan varnarmann fyrir komandi tímabil en Liana Hinds er gengin í raðir félagsins.
Hinds, sem er 25 ára gömul, er fædd og uppalin í Bandaríkjunum en hún spilaði fyrir Uconn Huskies í háskólaboltanum þar í landi frá 2012 til 2015.
Hún á ættir sínar að rekja til Trínidad og Tóbago og ákvað að leika fyrir hönd landsliðsins.
Hinds lék með Trínidad og Tóbagó á gullmótinu í Bandaríkjunum árið 2018.
Árið 2019 gekk hún til liðs við sænska liðið Sundsvall og lék samtals ellefu leiki með liðinu en hún er nú gengin í raðir ÍBV og mun spila með liðinu í Pepsi Max-deildinni í sumar.
ÍBV hafnaði í 8. sæti deildarinnar á síðasta tímabili með 17 stig.
Athugasemdir