Austurríski markvörðurinn Christopher Knett var ekki með Panetolikos í leik liðsins gegn Panathinaikos í grísku úrvalsdeildinni í kvöld en klaufalegt slys í eldhúsinu varð til þess að hann missti af leiknum.
Knett er 30 ára gamall og er aðalmarkvörður Panetolikos en hann hefur spilað 21 leik í deildinni til þessa.
Það kom hins vegar á óvart er hann var ekki í hópnum hjá liðinu í kvöld en gríska blaðið Nova greinir frá ástæðunni.
Knett brenndi sig á hendi er hann var að elda steik og missti því af leiknum.
Það kom ekki að sök því Panetolikos vann Panathinaikos 1-0 en Knett verður klár fyrir næsta leik.
Athugasemdir