Fotbolti.net
07.09.26 - 11:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Segir Aron Snæ á leið í Val

Segir Aron Snæ á leið í Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær Ingason, leikmaður Þróttar, hefur verið orðaður við Val á þessu ári, fyrst fyrir tímabilið og svo í gegnum sumarið. Þróttur hafnaði tilboði Vals í sóknarmanninn í vor en hann er með lausan samning og má ræða við önnur félög.

Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net, kvaðst í Innkastinu hafa heimildir fyrir því að Aron Snær færi í Val eftir tímabilið og það hefur heyrst úr fleiri áttum.
Skoraði þrennu í kvöld og er eftirsóttur af félögum í Bestu
TENGT EFNI

Skoraði þrennu í kvöld og er eftirsóttur af félögum í Bestu

Aron Snær er fæddur 2001 og hefur skorað ellefu mörk í Lengjudeildinni í sumar.

Framundan hjá Þrótti er umspilið um sæti í Bestu deildinni. Liðið mætir Njarðvík í undanúrslitum og sigurliðið úr því einvígi mætir svo annað hvort HK eða Fylki í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni.
Segir Aron Snæ á leið í Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.