Fotbolti.net
07.09.26 - 12:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Formaður Vals kveður sögusagnir í kútinn - „Veit ekki hvaða þvæla það er"

Fótbolti.net hefur heimildir fyrir því að Chris Brazell verði ekki áfram hjá Val eftir tímabilið.

Fótbolti.net hefur heimildir fyrir því að Chris Brazell verði ekki áfram hjá Val eftir tímabilið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net munu þeir Chris Brazell, starfandi þjálfari Vals, og aðstoðarmaður hans, Vignir Snær Stefánsson, yfirgefa félagið að tímabilinu loknu.

Styrmir Þór Bragason, formaður fótboltadeildar Vals, vildi ekki staðfesta þessi tíðindi í samtali við Fótbolta.net.
Markvarðaþjálfarinn að kveðja Val - Hvernig verður teymið hjá Dóra Árna?
TENGT EFNI

Markvarðaþjálfarinn að kveðja Val - Hvernig verður teymið hjá Dóra Árna?

„Það er ekki rétt. Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun með Chris og það var skilið eftir þannig að við ætluðum að ræða saman í lok tímabils. Varðandi Vigni þá er hann að hugsa sér til hreyfings, það væri þá hans ákvörðun. Síðan hefur Emil (markmannsþjálfara) verið tilkynnt að hann verði ekki áfram," segir Styrmir.

Gareth Owen er yfirmaður fótboltamála hjá Val. Er ljóst að hann verður áfram?

„Hann er starfsmaður félagsins, ég sá umfjöllunina hjá ykkur (á Fótbolta.net), veit ekki hvaða þvæla það er. Að öllu óbreyttu verður hann áfram," segir Styrmir sem staðfestir að styrktarþjálfarinn Kirian Elvira Acosta verði áfram hjá félaginu.

Er búið að taka einhverja ákvörðun hverjir verða með Dóra í hans þjálfarateymi?

„Nei, það eru einhver nöfn á blaði en það er ekki búið að ganga frá neinum ráðningum, ekkert frágengið," segir Styrmir.

Halldór Árnason mun taka við sem þjálfari Vals eftir tímabilið en það varð ljóst í júní þegar Hermann Hreiðarsson var látinn fara. Chris, sem var aðstoðarmaður Hermanns, hefur stýrt liðinu frá þeim tímapunkti.
Vignir Snær var ráðinn til Vals eftir síðasta tímabil.

Vignir Snær var ráðinn til Vals eftir síðasta tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gareth Owen (fyrir miðju) verður að öllu óbreyttu áfram hjá Val.

Gareth Owen (fyrir miðju) verður að öllu óbreyttu áfram hjá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.