22.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Srnicek fer frítt til West Ham (Staðfest)




West Ham hefur fengið tékkneska markvörðinn Pavel Srnicek frítt frá Portsmouth. Srnicek var á eins mánaðar láni hjá West Ham og nú eftir að Stephen Bywater aðalmarkvörður liðsins fékk rauða spjaldið um helgina og fer því í leikbann vildi Alan Pardew stjóri liðsins endilega halda Srnicek. Harry Redknapp leyfði Srnicek þá bara að fara frítt til West Ham enda var hann þriðji í markvarðarröð liðsins, á eftir Shaka Hislop og Harald Waapenar.
