22.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Birmingham kaupir Maik Taylor (Staðfest)




Birmingham hefur keypt markvörðinn Maik Taylor af Fulham á 1,5 milljón punda. Talyor sem að er 32 ára Norður-írskur landsliðsmaður hefur verið í láni hjá Birmingham á þessari leiktíð og leikið alls 32 leiki með liðinu. Hann hefur verið talinn einn besti leikmaður Birmingham á tímabilinu en hann hefur ekki komist í liðið hjá Fulham þar sem að fyrir er Edwin Van Der Sar og því tekur Taylor því fegins hendi að ganga alfarið til liðs við Birmingham.
