Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. mars 2021 10:55
Magnús Már Einarsson
Xabi Alonso að taka við Gladbach
Pep Guardiola og Xabi Alonso.
Pep Guardiola og Xabi Alonso.
Mynd: Getty Images
Xabi Alonso, fyrrum miðjumaður Liverpool, Real Madrid og Bayern Munchen, hefur samþykkt að taka við sem þjálfari Gladbach í Þýskalandi í sumar.

Marco Rose, þjálfari Gladbach, mun færa sig yfir til Borussia Dortmund í sumar.

Gladbach var í baráttu um Meistaradeildarsæti fyrir áramót en liðið hefur hrapað niður í 10. sætið á undanförnum vikum.

Alonso þekkir til í þýska boltanum en hann varð þrívegis meistari þar í landi með Bayern Munchen áður en skórnir fóru á hilluna árið 2017.

Í vetur hefur hinn 39 ára gamli Alonso stýrt B-liði Real Sociedad í spænsku C-deildinni en liðið er í efsta sæti í sínum riðli.
Athugasemdir
banner
banner
banner