22.04.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Elmander til Bröndby næsta sumar (Staðfest)




Sænski sóknarmaðurinn Johan Elmander mun ganga til liðs við danska liðið Bröndby 1.júlí næstkomandi. Elmander sem að er 22 ára er á mála hjá Feyenoord en samningur hans við liðið rennur út næsta sumar. Á þessari leiktíð hefur kappinn verið í láni hjá öðru hollensku liði, NAC Breda en hann er nokkuð sterkur leikmaður og hefur skorað þrjú mörk í átta landsleikjum með Svíum.
