Keflavík og KA náðu í fyrstu stig sín í Bestu deild karla á þessu tímabili, en Keflavík gerði markalaust jafntefli við Breiðablik á HS Orku-vellinum á meðan Diego Montiel bjargaði stigi fyrir KA gegn ÍA í Akraneshöllinni í 3. umferð deildarinnar í kvöld.
Skagamenn voru mun betri aðilinn stærstan hluta leiksins og settu tóninn snemma. Ómar Björn Stefánsson og Markús Páll Ellertsson spiluðu sín á milli áður en Ómar setti boltann í þverslá.
KA náði að vinna sig aðeins betur inn í leikinn, en Skagamenn samt með yfirhöndina.
Markús Páll Ellertsson gerði annað mark sitt í Bestu deildinni á tímabilinu á 32. mínútu leiksins. KA tapaði boltanum klaufalega og keyrði Gísli Eyjólfsson fram, lagði hann til hægri á Markús sem setti boltann á milli fóta hjá Steinþóri Má Auðunssyni og í netið.
Gabríel Snær Gunnarsson, sem mun ganga í raðir Elfsborg í sumar, kom sér í frábært færi nokkrum mínútum síðar. Markús keyrði inn frá hægri, setti boltann inn á teiginn á Gabríel sem vann einvígið við varnarmanninn og var kominn í dauðafæri en setti boltann yfir markið.
Besta færi KA kom undir lok hálfleiksins. Árni Marinó Einarsson kýldi fyrirgjöf út á Valdimar Loga Sævarsson, sem fór framhjá varnarmanni og reyndi að vippa boltanum yfir Árna sem rétt náði að blaka boltanum yfir markið. Ágætis tilraun hjá Valdimar enda stóð Árni framarlega í markinu.
Steinþór Már, markvörður KA, var frábær í seinni hálfleiknum og hélt KA mönnum inn í leiknum með frábærum vörslum. Hann sá við Markúsi eftir slaka sendingu Markúsar Mána til baka og síðan aftur frá Gabríel.
Markús Máni átti skalla í stöng á 64. mínútu áður en Skagamenn fengu dauðafæri til að koma sér í þægilega stöðu nokkrum mínútum síðar.
Gísli Laxdal komst í gegn hægra megin, átti skot sem Steinþór varði og síðan varði hann frákastið út á Viktor Jónsson sem var einn á móti opnu marki en setti boltann yfir. Ótrúleg sena.
Þessi frammistaða Steinþórs hefur greinilega veitt liðsfélögum hans innblástur því jöfnunarmarkið kom skömmu síðar er Valdimar Logi Sævarsson sendi boltann í gegnum pakkann og á Diego Montiel sem skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir KA með föstu og laglegu skoti.
Eftir það gátu bæði lið unnið leikinn. Jeppe Pedersen átti skemmtilega tilraun frá miðju en skotið ekki nógu fast. Leikurinn fjaraði út og lokatölur 1-1.
KA komið á blað í Bestu deildinni á meðan Skagamenn eru með tvö stig.
Jafnt í bragðdaufum leik í Keflavík
Keflavík og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í bragðdaufum leik á HS Orku-vellinum.
Heimamenn voru ívið betri og héldu vel í boltann í fyrri hálfleiknum en sköpuðu sér fá færi. Eiður Orri Ragnarsson kom sér í ágætis færi á 24. mínútu en setti boltann framhjá.
Blikar tóku við sér undir lok hálfleiksins. Kristófer Ingi Kristinsson kom sér í fínasta færi, en rann aðeins til og setti boltann yfir áður en Davíð Ingvarsson skaut framhjá.
Rólegt í fyrri hálfleiknum en aðeins meiri ákefð undir lokin þar sem Blikar voru nálægt.
Jónatan Guðni Arnarsson fékk færi snemma í síðari hálfleik en setti boltann framhjá og fjórum mínútum síðar kom besta færi Blika í leiknum er Höskuldur Gunnlaugsson stakk boltanum inn á Óla Val Ómarsson sem hitti ekki boltann nægilega vel og náði ekki að setja hann á rammann.
Blikar voru líklegri síðustu mínúturnar til þess að gera sigurmark, en markalaust jafntefli var niðurstaðan. Ekki besta auglýsingin fyrir deildina, en það er ekki bara fegurð í þessu. Nýliðarnir fagna góðu stigi og Blikar eru áfram taplausir.
Blikar eru með fimm stig í 3. sæti deildarinnar en Keflavík að sækja fyrsta stig tímabilsins.
Keflavík 0 - 0 Breiðablik
Lestu um leikinn
ÍA 1 - 1 KA
1-0 Markús Páll Ellertsson ('32 )
1-1 Diego Montiel ('70 )
Lestu um leikinn
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 2 | 2 | 0 | 0 | 8 - 4 | +4 | 6 |
| 2. Stjarnan | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 4 | +2 | 6 |
| 3. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 4. Fram | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 - 4 | +2 | 4 |
| 5. Víkingur R. | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 - 1 | +2 | 4 |
| 6. Valur | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 3 | 0 | 3 |
| 7. Þór | 2 | 1 | 0 | 1 | 4 - 6 | -2 | 3 |
| 8. FH | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 9. ÍA | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 10. ÍBV | 2 | 0 | 1 | 1 | 2 - 3 | -1 | 1 |
| 11. Keflavík | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 12. KA | 2 | 0 | 0 | 2 | 2 - 5 | -3 | 0 |


