22.06.04 - 13:08
Magnús Már Einarsson
Espanyol semur við Pochettino (Staðfest)




Mauricio Pochettino hefur skrifað undir þriggja ára samning við Espanyol. Pochettino sem að er 32 ára argentískur varnarmaður kom til Espanyol á láni frá franska liðinu Bordeaux þegar að félagaskiptaglugginn var opinn í vetur. Pochettino hefur nú fengið samningi sínum rift við Bordeaux og gengið til liðs við Espanyol en þar kannast hann við sig því að hann var hjá félaginu á sínum tíma en fór til PSG árið 2001 og fór þaðan til Bordeaux.
Pochettino er fyrsti leikmaðurinn sem að Miguel Angel Lotina nýráðinn stjóri Espanyol fær til liðsins.
