Fotbolti.net
22.06.04 - 15:44
Magnús Már Einarsson

Garðar Bergmann Gunnlaugsson í Val (Staðfest)

Garðar Bergmann Gunnlaugsson í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: ia.is/kia

Valsarar hafa fengið fínan liðsstyrk fyrir komandi átök í fyrstu deildinni því að þeir hafa fengið sóknarmanninn Garðar Bergmann Gunnlaugsson frá ÍA en þetta staðfesti Garðar í samtali við fréttaritara Fótbolta.net. Garðar sem að er núverandi Herra Ísland hefur fengið fá tækifæri með Skagamönnum á þessu tímabili, komið við sögu í þremur af sex leikjum liðsins í Landsbankadeildinni.
Garðar fékk sig því lausan undan samningi hjá Skagamönnum og hefur skrifað undir samning við Val sem að gildir til ársins 2006.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.