Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 22. júní 2021 16:06
Elvar Geir Magnússon
PSG sendir Real Madrid fyrirspurn um Varane
Varane er 28 ára franskur landsliðsmaður.
Varane er 28 ára franskur landsliðsmaður.
Mynd: EPA
Spænska blaðið Marca segir að franska stórliðið Paris Saint-Germain hafi blandað sér í baráttuna um miðvörðinn Raphael Varane hjá Real Madrid.

Varane hefur ansi oft í gegnum árin verið orðaður við Manchester United, líka í þessum sumarglugga þar sem margir telja að hann sé fullkominn miðvörður við hlið Harry Maguire.

Varane á eitt ár eftir af samningi sínum við Real Madrid og talið er að hann sé fáanlegur fyrir um 43 milljónir punda.

PSG ku hafa sent Real Madrid fyrirspyrn um Varane en talið er líklegt að hann færi sig um set í sumar.

Það myndi skapa frekari vandamál fyrir Madrídinga sem þegar hafa misst annan lykilmann í vörninni, Sergio Ramos. Hann yfirgaf félagið þegar samningur hans rann út núna í sumar.
Athugasemdir
banner
banner