Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. júní 2022 00:02
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Árbær stöðvaði Hvíta riddarann - Stórsigur KÁ
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Hanna Símonardóttir
Mynd: Hanna Símonardóttir

Það fóru fjórir leikir fram í fjórðu deildinni í kvöld og þrír þeirra voru í A-riðli þar sem hart er barist um toppsætið.


Hvíti riddarinn er á toppnum eftir að hafa misstigið sig í fyrsta sinn á tímabilinu. Mosfellingar gerðu jafntefli gegn Árbæ á heimavelli, 1-1, og leiða riðilinn með 16 stig eftir 6 umferðir. 

Skallagrímur er í öðru sæti með 15 stig eftir nauman sigur á Ísbirninum þar sem Elís Dofri Gylfason gerði eina mark leiksins undir lokin. Árbær er í þriðja sæti með 13 stig.

Kría rúllaði svo yfir Reyni Hellissandi í miklum markaleik þar sem Viðar Þór Sigurðsson setti þrennu í 9-5 sigri. Kría er með 9 stig og Reynir er áfram á botninum án stiga.

KÁ rúllaði þá yfir Afríku í B-riðli. Staðan var 7-0 þegar tveir leikmenn Afríku fengu rautt spjald eftir 70. mínútu og urðu lokatölur 10-0.

KÁ er í þriðja sæti ásamt Úlfunum með 10 stig eftir 6 umferðir, fjórum stigum eftir toppliðunum.

A-riðill:
Ísbjörninn 0 - 1 Skallagrímur
0-1 Elís Dofri G Gylfason ('84)

Kría 9 - 5 Reynir H.
1-0 Jóhannes Sakda Ragnarsson ('1 )
2-0 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('5 )
3-0 Páll Bjarni Bogason ('16 )
3-1 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('35 )
4-1 Viðar Þór Sigurðsson ('40 )
4-2 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('53 )
4-3 Kristófer Máni Atlason ('59 )
5-3 Viðar Þór Sigurðsson ('60 )
5-4 Kristófer Máni Atlason ('67 )
6-4 Marteinn Pétur Urbancic ('68 )
7-4 Arnór Daði Halldórsson ('71 )
8-4 Viðar Þór Sigurðsson ('84 )
8-5 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('84 , Mark úr víti)
9-5 Eggert Þorsteinsson ('90 )

Hvíti riddarinn 1 - 1 Árbær
1-0 Guðjón Breki Guðmundsson ('8 )
1-1 Ævar Daði Stefánsson ('26 )

B-riðill:
KÁ 10 - 0 Afríka
1-0 Aron Hólm Júlíusson ('4 )
2-0 Aron Hólm Júlíusson ('22 )
3-0 Þórður Örn Jónsson ('25 )
4-0 Þórður Örn Jónsson ('31 )
5-0 Aron Hólm Júlíusson ('47 )
6-0 Sindri Hrafn Jónsson ('48 )
7-0 Arnar Gauti Ólafsson ('69 )
8-0 Arnar Gauti Ólafsson ('81 )
9-0 Luis Lucas António Cabambe ('85 )
10-0 Arnar Gauti Ólafsson ('90 )
Rautt spjald: Jailson Monteiro, Afríka ('70)
Rautt spjald: Cedrick Mukya, Afríka ('74)


Athugasemdir
banner
banner
banner