22.07.22 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mbabu að ganga í raðir Fulham - Læknisskoðun í Portúgal

Í leik gegn Íslandi í Þjóðadeildinni haustið 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kevin Mbabu er að ganga í raðir Fulham frá þýska félaginu Wolfsburg. Búið er að semja up kaup og kjör og fer hann í læknisskoðun í dag.
Það gerir hann í Portúgal þar sem Fulham er þar í æfingaferð. Fulham greiðir ríflega sex milljónir punda fyrir leikmanninn.

Mbabu er hægri bakvörður sem var á sínum tíma á mála hjá Newcastle.
Hann er 27 ára gamall landsliðsmaður Sviss með 82 leiki á þremur árum hjá Wolfsburg. Hann hefur spilað 22 A-landsleiki og tók við bakvarðarstöðunni af Stephan Lichtsteiner.