Ekki möguleiki á þjálfarabreytingum uppi á Skaga

„Við sjáum Lárus og hans þjálfarateymi vinna í þessum hlutum dag og nótt.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tapað fimm í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þegar illa gengur þá brettum við upp ermar og leggjum harðar að okkur.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þremur stigum frá fallsæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við sjáum Lárus og hans þjálfarateymi vinna í þessum hlutum dag og nótt.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA, segir í samtali við Fótbolta.net ekki möguleika á þjálfarabreytingum hjá félaginu þrátt fyrir dræma stigasöfnun.
„Nei, það er ekki möguleiki. Við sjáum Lárus og hans þjálfarateymi vinna í þessum hlutum dag og nótt. Nú er þetta samvinna hjá öllum í félaginu að reyna að rétta gengið við,“ segir Ingimar og heldur áfram.
„Við erum með öflugt fólk í þjálfarateyminu, leikmannahópnum og því sem vinnur í kringum félagið. Ég er sannfærður um að það muni snúa þessu gengi við,“ segir Ingimar.

Lárus óttast ekki brottrekstur: Er vakinn og sofinn yfir þessu
Aðspurður um hvernig hann meti stöðuna segir Ingimar hana augljóslega ekki ákjósanlega og telur hann skort á stöðugleika vera eitt helsta vandamál liðsins.
„Það er auðvitað ekki gott að tapa fimm leikjum í röð. Þessir fimm leikir hafa allir verið kaflaskiptir hjá okkur. Bæði liðið og þjálfarateymið þurfa núna að leggja hart að sér að finna meiri stöðugleika í leik liðsins yfir 90. mínútur.“
„Við höfum átt margar góðar rispur í leikjunum okkar en það koma kaflar þar sem við höfum ekki verið nægilega góðir. Við höfum ekki náð að nýta góðu kaflana til að koma okkur í betri stöður og skora mörk. Aftur á móti hafa andstæðingarnir látið okkur finna fyrir því,“ segir Ingimar.
Keppnisfólk uppi á Skaga
Hvernig er andinn í liðinu og í bænum sjálfum?
„Ég finn mikinn kraft í leikmannahópnum að snúa þessu við. Þetta eru keppnismenn og við erum mikið keppnisfólk uppi á Skaga. Við höfum miklar skoðanir á fótboltanum,“ segir Ingimar og heldur áfram.
„Ég held að fólk hérna uppi á Skaga, hvort sem það er í félaginu eða í bænum, sé staðráðið í að snúa þessu gengi við og við viljum gera það sem fyrst.
Ég finn það aðallega, þegar illa gengur þá brettum við upp ermar og leggjum harðar að okkur og vinnum okkur út úr þessari stöðu sem við höfum komið okkur í,“ segir Ingimar að lokum.

Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tapað fimm í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þegar illa gengur þá brettum við upp ermar og leggjum harðar að okkur.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þremur stigum frá fallsæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 15 | +38 | 40 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 15 | +13 | 33 |
| 4 | Breiðablik | 15 | +8 | 26 |
| 5 | Keflavík | 15 | -4 | 19 |
| 6 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 7 | ÍBV | 15 | -7 | 16 |
| 8 | Stjarnan | 15 | -8 | 15 |
| 9 | ÍA | 15 | -12 | 15 |
| 10 | KA | 15 | -8 | 14 |
| 11 | FH | 15 | -11 | 12 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |


