Fotbolti.net
21.07.26 - 21:23
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Víkingar halda áfram að skrifa söguna og Nikolaj bætir markametin

Nikolaj Hansen fagnar fyrra marki sínu gegn Hapoel í kvöld.

Nikolaj Hansen fagnar fyrra marki sínu gegn Hapoel í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar unnu sögulegan sigur í kvöld þegar þeir lögðu Hapoel Be’er Sheva frá Ísrael að velli, 2-1, í annarri umferð undankeppni Meistaradeildar karla á Víkingsvellinum.

Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt lið sigrar lið frá Ísrael í Evrópukeppni og hingað til höfðu íslensk lið aðeins einu sinni náð jafntefli í viðureignum þjóðanna á þessum vettvangi.

Þar með hafa Víkingar rofið tvo múra fyrir íslensk félög í tveimur fyrstu umferðum keppninnar en þeir urðu líka fyrstir til að leggja lið frá Ungverjalandi að velli í fyrstu umferðinni.

Nikolaj Hansen skoraði bæði mörk Víkings og bætti þar með tvöfalt markamet sitt í Evrópukeppni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.