22.08.26 - 13:24
Brynjar Ingi Erluson
England: Martraðarbyrjun hjá Man Utd

Man Utd tapaði fyrir nýliðum Hull

Mynd: EPA

Nobel Mendy fagnar fyrsta marki sínu með Hull

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Man Utd tapaði fyrir nýliðum Hull

Mynd: EPA
Hull City 2 - 0 Manchester Utd
1-0 Semi Ajayi ('17 )
2-0 Nobel Mendy ('38 )
1-0 Semi Ajayi ('17 )
2-0 Nobel Mendy ('38 )
Nýliðar Hull City unnu frækinn 2-0 sigur á Manchester United í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á MKM-leikvanginum í hádeginu.
Hull er spáð falli af mörgum og fáir hafa trú á að liðið geti látið mikið að sér kveða í vetur. Nýliðarnir ætla þó ekki að láta slíkar spár á sig fá og sýndu í dag að þeir geta veitt stærstu liðunum harða keppni.
Michael Carrick stillti upp óvæntu byrjunarliði og lét nokkur stór nöfn byrja á bekknum. Þar voru meðal annars Lisandro Martinez, Marcus Rashford, Kobbie Mainoo, Diogo Dalot og Benjamin Sesko.
Bryan Mbeumo fékk ágætt færi snemma leiks en tókst ekki að nýta það. Annars var United-liðið í miklu basli, sérstaklega varnarlega.
Hull var grimmara og sterkari aðilinn og komst verðskuldað yfir á 17. mínútu. Senne Lammens varði fyrst skalla frá Oli McBurnie og þurfti síðan að taka aftur á honum stóra þegar hann sló fyrirgjöf Ryan Giles aftur fyrir endamörk.
Markið kom úr hornspyrnunni. Boltinn fór inn á nærsvæðið og í gegnum allan pakkann á McBurnie. Lammens varði skot hans í stöngina en frákastið féll fyrir Semi Ajayi sem gat ekki annað en skorað.
Mbeumo fékk annað ágætt færi þegar hann reyndi bakfallsspyrnu inni í teignum en hún rataði ekki í markið.
Hull tvöfaldaði forystuna á 37. mínútu. Regan Slater sendi aukaspyrnu inn á teiginn þar sem Nobel Mendy reis hæst og skallaði boltann fast í hornið.
Þetta var fyrsta mark Mendy fyrir Hull og kom það í frumraun hans, aðeins nokkrum dögum eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Rayo Vallecano.
Rashford kom inn fyrir Patrick Dorgu í síðari hálfleik og sýndi ágæta takta inn á milli. Þetta var fyrsti keppnisleikur hans fyrir United í tæp tvö ár.
Kostas Tzolakis átti þá mjög góða frumraun í marki Hull og hélt hreinu. Mbeumo fékk besta færi United á lokakaflanum þegar hann slapp í gegn hægra megin en Tzolakis las stöðuna vel og varði frábærlega.
United sótti stíft undir lokin en tókst aldrei að koma sér aftur inn í leikinn.
Lokatölur urðu 2-0 og nýliðarnir gátu varla beðið um betri byrjun á tímabilinu. United tekur á móti Ipswich í næstu umferð en Hull heimsækir Coventry í nýliðaslag.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 1 | +3 | 3 |
| 2 | Hull City | 1 | +2 | 3 |
| 3 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Man City | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 18 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Man Utd | 1 | -2 | 0 |
| 20 | Coventry | 1 | -3 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |