Fotbolti.net
22.08.26 - 10:33
Brynjar Ingi Erluson

Joao Pedro framlengir við Chelsea til 2034 (Staðfest)

Joao Pedro skrifaði undir til 2034

Joao Pedro skrifaði undir til 2034

Canon

Mynd: EPA

Brasilíski framherjinn Joao Pedro hefur framlengt samning sinn við Chelsea til ársins 2034.
Pedro er 24 ára gamall framherji sem Chelsea keypti frá Brighton á síðasta ári.

Hann skoraði 20 mörk á sínu fyrsta tímabili, varð markahæsti leikmaður liðsins og var jafnframt valinn besti leikmaður tímabilsins hjá félaginu.

Pedro hefur haldið uppteknum hætti á undirbúningstímabilinu og verið sjóðandi heitur. Hann hafnaði áhuga annarra félaga í sumar og vildi halda kyrru fyrir hjá Chelsea. Félagið hefur nú verðlaunað hann með nýjum samningi.

Pedro skrifaði undir samninginn í dag og gildir hann næstu átta árin.

„Ég er ótrúlega ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning við Chelsea. Mig hefur alltaf dreymt um að spila fyrir stórt félag og það hefur mikla þýðingu fyrir mig að skuldbinda mig til lengri tíma.“

„Chelsea á ríka sögu og hefur unnið marga titla. Ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni. Ég á í góðu sambandi við alla hjá félaginu og mér hefur liðið eins og heima hjá mér í Lundúnum frá því ég kom hingað.“

„Allir eru spenntir fyrir tímabilinu og við vitum að við getum afrekað stóra hluti. Við erum með frábært lið og stjóra sem vill vinna og hefur þegar unnið titla.“

„Ég er algjörlega skuldbundinn félaginu, allir eru tilbúnir og vonandi náum við markmiðum okkar,“
sagði Pedro.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.