Fotbolti.net
22.08.26 - 12:44
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Leipzig lánar Elmas til Ítalíu í þriðja sinn (Staðfest)

Leipzig lánar Elmas til Ítalíu í þriðja sinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Atalanta

Þýska félagið RB Leipzig hefur lánað norður-makedóníska sóknartengiliðinn Eljif Elmas til Atalanta út tímabilið.
Þetta er í þriðja sinn sem Leipzig lánar hann til Ítalíu síðan félagið keypti hann frá Napoli fyrir tveimur árum.

Hann lék aðeins sextán leiki á sínu fyrsta tímabili í Þýskalandi og sex á því næsta en hefur fundið sig mun betur í ítalska boltanum.

Atalanta hefur nú fengið hann á láni út tímabilið með kaupákvæði í samningnum. Atalanta greiðir tvær milljónir evra fyrir lánið og getur síðan keypt hann fyrir tólf milljónir.

Elmas, sem er 26 ára, á að baki 79 landsleiki og þrettán mörk fyrir Norður-Makedóníu. Íslendingar þekkja vel til hans enda skoraði hann tvennu gegn Íslandi í mikilvægum leik í undankeppni HM 2022 og hjálpaði þjóð sinni að tryggja sér sæti í umspilinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.