22.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Páll Árnason nýr yfirmaður fótboltamála hjá Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram er búið að ráða Pál Árnason til starfa sem yfirmann fótboltamála hjá félaginu.
Ráðningin er liður í breytingum á faglegri forystu fótboltafélagsins, þar sem lögð er aukin áhersla á skýra stefnu, afreksstarf og áframhaldandi uppbyggingu yngri flokka.
Páll hefur störf hjá Fram 1. september og verða hans meginverkefni að leiða mótun, innleiðingu og eftirfylgni stefnu fyrir yngri flokka og afreksstarf félagsins. Hann mun vinna náið með yfirþjálfara yngri flokka, stjórn knattspyrnudeildar, barna- og unglingaráði og þjálfurum meistaraflokka að því að skapa skýra heildarsýn og sterkan faglegan grunn fyrir fótboltastarfið.
„Við erum mjög ánægð með að fá Pál til liðs við okkur. Hann kemur með mikla reynslu og þekkingu sem mun nýtast okkur vel í þeirri vegferð sem fram undan er. Við höfum metnað til að taka næsta skref í faglegri uppbyggingu yngri flokka, skapa skýrari stefnu og styrkja enn frekar umgjörðina í kringum afreksstarfið. Við teljum Pál rétta aðilann til að leiða þá vinnu með okkur," sagði Auður Geirsdóttir, formaður barna- og unglingaráðs Fram, í dag.
Guðmundur Torfason, formaður knattspyrnudeildar Fram, tók í svipaða strengi. „Ráðning Páls er mikilvægt skref í þeirri uppbyggingu sem við viljum sjá hjá knattspyrnudeild Fram til lengri tíma. Markmiðið er að efla faglega forystu, skapa meiri samfellu í starfinu og tryggja skýra sýn á þróun leikmanna frá yngstu flokkum og áfram. Við erum mjög ánægð með að fá Pál inn í félagið og hlökkum til samstarfsins," sagði Gummi Torfa.