Fotbolti.net
22.09.04 - 15:59
Magnús Már Einarsson

Ólafur Gottskálksson til Torquay (Staðfest)

Ólafur Gottskálksson til Torquay (Staðfest)
Canon
Ólafur Gottskálksson sem að yfirgaf Keflavík í sumar hefur samið við lið Torquay United í ensku annari deildinni en þar mun hann leika til loka tímabilsins.
Ólafur samdi við enska utandeildarliðið Margate fyrir nokkru en Torquay sem að er 22 öðru sæti í ensku annari deildinni vantaði markvörð og fékk Ólaf til að koma og mun hann væntanlega kom beint inn í byrjunarliðið þar.

Málið er dálítið flókið fyrir Ólaf því að hann fékk borgað úr tryggingunum þegar hann hætti í atvinnumennskunni en hann fékk borgað vegna þess hversu miklum meiðslum hann lenti í.

Fyrst að hann er að komast aftur í atvinnumennsku verður hann að endurgreiða tryggingunum. Það er ekki ljóst hvort Toqruay United verði að endurgreiða upphæðina auk þess sem ekki er ljóst hvort Ólafur hafi náð sér að fullu eftir endurhæfingu á íslandi segir á stuðningsmannasíðu Torquay.

Ólafur er því saminingslaus hjá félaginu í augnablikinu og Torquay verða að gefa 7 daga fyrirvara sem tryggingarnar gætu gefið eftir svo hann gæti spilað fyrsta leik gegn Tranmere Rovers á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.