Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. september 2021 15:00
Elvar Geir Magnússon
Nefnd sem skoðar hvað átti sér stað bak við tjöldin hjá KSÍ
Hafrún, Kjartan og Rán eru í nefndinni.
Hafrún, Kjartan og Rán eru í nefndinni.
Mynd: ÍSÍ
Hafrún Kristjánsdóttir, Rán Ingvarsdóttir, Kjartan Bjarni Björgvinsson, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Gísli Gíslason varaformaður KSÍ.
Hafrún Kristjánsdóttir, Rán Ingvarsdóttir, Kjartan Bjarni Björgvinsson, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Gísli Gíslason varaformaður KSÍ.
Mynd: ÍSÍ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur sett á stofn nefnd þriggja aðila sem gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands.

Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur, Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari, sem jafnframt er formaður nefndarinnar og Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur hafa verið skipuð í nefndinda.

Úttektarnefnd ÍSÍ er sjálfstæð og óháð í störfum sínum. Í yfirlýsingu segist KSÍ ábyrgjast að nefndin fái aðgang að öllum þeim gögnum sem það hefur með höndum.

Nefndinni er ætlað að fara yfir þá atburðarás sem leiddi til afsagnar formanns og fyrirhugaðrar afsagnar stjórnar KSÍ ásamt því að bregðast við ásökunum sem fram hafa komið m.a. um þöggun innan KSÍ.

Staðreyna eins og kostur er hvaða vitneskja hafi verið innan stjórnar og / eða starfsmanna KSÍ um að leikmenn landsliða eða aðrir sem starfa fyrir KSÍ hafi beitt kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi á árunum 2010 – 2021.
Lýsa því hvernig eftirliti og viðbrögðum við slíkum atvikum var háttað innan KSÍ á fyrrgreindu tímabili.

Taka til athugunar hvort einhverjar þær aðstæður séu uppi innan KSÍ sem hamla þátttöku kvenna í starfi þess. Þetta er gert í tengslum við fullyrðingar sem fram hafa komið í opinberri umræðu um að KSÍ sé karllægt og fráhrindandi fyrir konur. Í því sambandi verður skoðað hvort skipulag KSÍ eða aðrir þættir í starfseminni séu hamlandi fyrir þátttöku kvenna í starfinu.

Leggja grunn að tillögum um úrbætur á verklagi eða um frekari viðbrögð.

Úttektarnefnd ÍSÍ hefur störf nú þegar og er ætlað að ljúka störfum eigi síðar en í nóvember.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner