Fotbolti.net
22.09.26 - 18:04
Ívan Guðjón Baldursson

Agla María framlengir við Breiðablik (Staðfest)

Agla María framlengir við Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks og einn besti leikmaður síðustu ára í Bestu deildinni, er búin að framlengja samning sinn við félagið út keppnistímabilið 2028.
Sterkust í 19. umferð - Hefur sett viðmiðið svo hátt
TENGT EFNI

Sterkust í 19. umferð - Hefur sett viðmiðið svo hátt

Agla María er 27 ára gömul og er sú þriðja leikjahæsta í sögu kvennaliðs Breiðabliks.

Hún er margfaldur Íslands- og bikarmeistari með liðinu og á 65 A-landsleiki að baki.

Þetta eru frábærar fregnir fyrir ríkjandi Íslandsmeistara sem eru í harðri titilbaráttu við FH á lokaspretti deildartímabilsins.

Agla María verður í eldlínunni á morgun þegar Breiðablik tekur á móti Czarni Sosnowiec í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins á Kópavogsvelli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.