Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 22. október 2020 17:30
Magnús Már Einarsson
De Bruyne byrjaður að æfa á ný
Manchester City hefur fengið góðar fréttir en belgíski miðjumaðurinn Kevin de Bruyne er byrjaður að æfa á nýjan leik.

Hinn 29 ára gamli De Bruyne meiddist í landsleik gegn Englendigum um þarsíðustu helgi.

De Bruyne var ekki með Belgum gegn Íslendingum í síðustu viku og hann hefur verið fjarri góðu gamni í síðustu tveimur leikjum Manchester City gegn West Ham og Porto.

De Bruyne æfði hins vegar á ný í dag sem eru góðar fréttir fyrir Manchester City fyrir leikinn gegn West Ham um helgina.

Athugasemdir
banner