22.11.26 - 11:21
Brynjar Ingi Erluson
Frábær tölfræði Orra vekur athygli á Spáni

Orri er að gera það gott með Sociedad

Mynd: EPA

Orri hefur skorað tíu mörk með félagsliði og landsliði á tímabilinu

Mynd: EPA

Orri er að gera það gott með Sociedad

Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson er á miklu flugi með Real Sociedad á Spáni og hefur alls skorað tíu mörk með liðinu og íslenska landsliðinu á tímabilinu. Hann er þegar farinn að skipa sér í hóp þeirra bestu í sögu Sociedad þegar kemur að markaskorun.

TENGT EFNI
Orri orðaður við Man Utd - Verðmiðinn sagður yfir 20 milljónir evra
Baskneski miðillinn Berria fjallar um frábært gengi Orra fyrir framan markið, en hann hefur að meðaltali skorað á 137 mínútna fresti síðan hann gekk í raðir félagsins fyrir tveimur árum. Samkvæmt miðlinum hefur aðeins einn leikmaður í sögu Real Sociedad gert betur, Meho Kodro, sem skoraði á 107 mínútna fresti á árunum 1991 til 1995.
Orri er meðal annars með betra markahlutfall miðað við spilaðar mínútur en sænski framherjinn Alexander Isak var á sínum tíma hjá félaginu.
Leikstíll Pellegrino Matarazzo, þjálfara Sociedad, virðist henta Orra mun betur en sá fótbolti sem liðið spilaði undir stjórn forvera hans, Imanol Alguacil.
„Leikstíll Imanol Alguacil var mun stöðubundnari og byggðist meira á því að spila boltanum í fæturna á leikmönnum, sem hentaði mönnum eins og Zubimendi og Merino vel. Það er hins vegar meiri hreyfing og kraftur í leik Sociedad undir stjórn Matarazzo, þar sem liðið horfir meira fram á við. Það hentar Orra mjög vel.“
„Orri var aðeins tvítugur þegar hann kom til Sociedad, nánast enn barn, en þurfti strax að axla mikla ábyrgð. Félagið sýndi honum hins vegar þolinmæði og gaf honum tíma til að þroskast og þróast sem leikmaður. Nú er hann farinn að uppskera.“
„Á síðasta tímabili sýndi hann hvað eftir annað hversu góður hann er í að skapa sér marktækifæri, en honum tókst ekki alltaf að nýta þau. Það var það sem hann þurfti að bæta og nú er hann farinn að gera það. Ef hann heldur áfram á þessari braut getur hann afrekað stórkostlega hluti. Hann á eftir að verða mjög alhliða markaskorari. Hann er ótrúlegur,“ sagði þjálfarinn og sérfræðingurinn Haritz Otxotorena í samtali við Berria.
Orri hefur skorað fjögur mörk í tíu deildarleikjum á tímabilinu og bætt við tveimur mörkum í Evrópudeildinni. Þá hefur hann einnig skorað fjögur mörk fyrir íslenska landsliðið í Þjóðadeildinni.
Frábært gengi hans hefur ekki farið fram hjá öðrum félögum og hefur Orri þegar verið orðaður við stærri lið í Evrópu, meðal annars í ensku úrvalsdeildinni.